Fréttir | 23. ágúst 2016 - kl. 10:03
Textílsýning í Bílskúrsgalleríinu

Fimmtudaginn 25. ágúst ætla listamenn ágúst mánaðar hjá Textílsetri Íslands á Blönduósi að bjóða til sýningar í Bílskúrsgalleríinu við Kvennaskólann frá klukkan 17-21. Sýningin heitir „Ljósaskipti“ og eru það listamennirnir Ceyda Oskay, Maxime Noilou, Vanessa Falle, Nidiya Kusmaya, Riisom, Linda Bartkuté, Denise Sololsky og Héléne Barrier sem standa að henni.

Allir eru velkomnir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga