Hjalti og Lára. Ljósmynd: Daníel Starrason
Hjalti og Lára. Ljósmynd: Daníel Starrason
Fréttir | 25. ágúst 2016 - kl. 09:04
Ný plata frá Hjalta og Láru

Í dag kemur út ný plata frá Hjalta Jónssyni og Láru Sóleyju Jóhannsdóttur sem nefnist Árbraut en nafnið vísar í æskustöðvar Hjalta á Blönduósi þar sem hann ólst upp. Hjalti segir að Árbraut sé líka tákn fyrir eitthvað sem er stöðugt en síbreytilegt.

Platan inniheldur tíu ný lög sem Hjalti og Lára hafa samið og útsett í sameiningu og í samstarfi við Stefán Örn Gunnlaugsson upptökustjóra plötunnar. Þau flytja einnig Vornæturljóð Elísabetar Geirmundsdóttur og Hildur Eir Bolladóttir samdi texta við eitt laganna. Tónlistin er þjóðlagaskotið ballöðupopp með sinfónískum blæ á köflum, að sögn Hjalta.

Á plötunni spila, ásamt Hjalta og Láru, Stefán Örn Gunnlaugsson, píanó, Ásdís Arnardóttir, selló, Ella Vala Ármannsdóttir, horn, Petrea Óskarsdóttir, þverflauta, Valgarður Óli Ómarsson, slagverk og Stefán Gunnarsson, bassi. Upptökur fóru fram á Akureyri í júní og var útgáfan að hluta til fjármögnuð á Karolinafund.com.

Útgáfu Árbrautar verður fagnað á Græna Hattinum í kvöld klukkan 21.00 og í Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 26. ágúst klukkan 20:30. Í september og október munu Hjalti og Lára ferðast víðsvegar um landið og halda tónleika. Þann 31. ágúst halda þau tónleika í Blönduóskirkju og hefjast þeir klukkan 20:30.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga