Konráð Gíslason
Konráð Gíslason
Tilkynningar | 25. ágúst 2016 - kl. 13:04
Konráðsþing í Kakalaskála

Málþing um Konráð Gíslason, málfræðing og einn Fjölnismanna, verður haldið í Kakalaskála í Skagafirði laugardaginn 3. september næstkomandi. Málþingið hefst klukkan 14:00 og endar með pílagrímsför að minnisvarðanum um Konráð klukkan 17:00.

Á málþinginu taka til máls Hjalti Pálsson, Eiríkur Rögnvaldsson, Svanhildur Óskarsdóttir, Páll Valsson og Sveinn Yngvi Egilsson. Málþingsstjóri verður Guðrún Ingólfsdóttir.

Dagskráin er eftirfarandi:

14:00     Hjalti Pálsson: „Konráð Gíslason! – Hvaða maður er það?“

14:30     Eiríkur Rögnvaldsson: Fræðimaðurinn Konráð og íslenskan

15:00      Svanhildur Óskarsdóttir: Hrærivél Konráðs og Njáluútgáfan 1875–89

15:30–16:00 Kaffihlé

16:00     Páll Valsson: „Hér er allt svo dauft og sem í draumi“ – Var Konráð Gíslason skáld?

16:30     Sveinn Yngvi Egilsson: „…þó maður sje aldrei nema nokkurneginn einlægur, eins og jeg er“: Bréfritarinn Konráð Gíslason

17:00     Pílagrímsför að minnisvarðanum um Konráð Gíslason

Kakalaskáli stendur að þinginu í samvinnu við Málvísindastofnun Háskóla Íslands og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, með styrk frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga