Fréttir | 26. ágúst 2016 - kl. 14:09
Skagganum skotið af stað með fallbyssu

Skagginn 2016 – bæjarhátíð Skagastrandar hefst í dag og verður henni skotið formlega af stað með fallbyssu við Fellsborg klukkan 17:30 í dag. Að því loknu býður Ungmennafélagið Fram til 90 ára afmælishátíðar í Fellsborg og á íþróttavellinum þar sem í boði verður afmæliskaka, leikir og gaman og kofabyggð. Í kvöld verður ljósaganga um Höfðann, kósý í sundlauginni og tónleikar á útisviði á Hólanesi.

Dagskrá hátíðarinnar má sjá hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga