Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 05:42 0 0°C
Laxárdalsh. 05:42 0 0°C
Vatnsskarð 05:42 0 0°C
Þverárfjall 05:42 0 0°C
Kjalarnes 05:42 0 0°C
Hafnarfjall 05:42 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Pistlar | 22. september 2016 - kl. 21:44
Gerum enn betur í heilbrigðismálum
Eftir Elsu Láru Arnardóttur

Öll viljum við hafa aðgang að góðri heilbrigðisþjónustu. Allir eiga jafnframt að eiga jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu, óháð efnahag, stöðu eða búsetu.

Við eigum góðar heilbrigðisstofnanir víða um landið. Stofnanir sem hafa gengið í gegnum sameiningar á undanförnum árum. Sameiningar sem höfðu það markmið að styrkja rekstragrunn þeirra og gera þær öflugri til að taka að sér aukin verkefni.

En hins vegar er það svo, að það skortir heildarstefnu innan heilbrigðiskerfisins, til að stýra veitingu þjónustunnar og nýta fjármagnið í kerfinu betur en nú er gert. Auk þessa þarf að halda áfram að auka fjármagn inn í heilbrigðiskerfið, eins og gert hefur verið á núverandi kjörtímabili.

Heilbrigðisáætlun fyrir Ísland
Því er komið að næsta skrefi og það er nauðsynlegt að stíga. Það þarf að gera svo sameining  heilbrigðisstofnana skili því sem henni var ætlað að skila. Til að það gangi eftir þar að fara í skilgreiningu á hvaða heilbrigðisþjónustu á að veita víðvegar um landið. Vinna þarf heilbrigðisáætlun fyrir Ísland. Í því samhengi þarf m.a. að horfa til aldursamsetningar íbúa, íbúaþróunar, fjarlægða og samgangna. Þessa vinnu þarf að vinna, bæði með heimamönnum og starfsfólki heilbrigðisstofnana.

Ívilnandi byggðaáætlun
Stefnumótun í heilbrigðismálum þarf að tengja saman við ívilnandi byggðaáætlun. Þar má m.a. horfa til þess að veita starfsmönnum skattaafslátt vegna ferða til og frá vinnu, í þessu samhengi akstur milli starfsstöðva heilbrigðisstofnana. Jafnframt þarf að kanna möguleika á því að nýta námslánakerfið á þann hátt að veita afslátt til þeirra sérfræðinga sem ráða sig í heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni.

Þetta er eitt af því sem við Framsóknarmenn viljum leggja áherslu á. Nú þegar er unnið að tillögum í þessa veru innan Byggðastofnunar og gaman verður að sjá hvernig þær tillögur líta út á endanum.  Við eigum að nýta þau tæki sem við eigum, til gagns fyrir fólkið í landinu og byggja um leið upp öfluga þjónustu um landið allt.

Elsa Lára Arnardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og skipar 2. sætið á lista flokksins í NV-kjördæmi.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið