Tilkynningar | 23. september 2016 - kl. 13:30
Endurhleðslunámskeið
Frá Skotfélaginu Markviss

Stefnt er á að haldið verði endurhleðslunámskeið á vegum Skotfélagsins Markviss, hér á Blönduósi laugardaginn 15 október. Námskeiðið verður endurgjaldslaust fyrir félagsmenn og gildir til E-réttinda í skotvopnaleyfi. Nánari tíma og staðsetning verður auglýst síðar. Áhugasamir geta skráð sig á Facebook-síðu félagsins eða í tölvupósti á kronos@simnet.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga