Skjáskot úr Fréttatímanum
Skjáskot úr Fréttatímanum
Fréttir | 25. september 2016 - kl. 21:03
Stóðsmölun og réttir í fréttum

Í helgarblaði Fréttatímans er stórskemmtileg umfjöllun um stóðsmölun á Laxárdal og Skrapatungurétt sem fram fór um síðustu helgi. Jóna Fanney Friðriksdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri á Blönduósi tók að sér að leiða blaðamann Fréttatímans, Öldu Lóu Leifsdóttur í gegnum daginn sem endaði um kvöldið á balli í Félagsheimilinu á Blönduósi.

Þá má einnig benda á að fjallað er um stóðréttarhelgina í Skrapatungu í nýjasta tölublaði Feykis.

Umfjöllun Fréttatímans má lesa hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga