Ari holumeistari G“S 2016
Ari holumeistari G“S 2016
Fréttir | 27. september 2016 - kl. 22:03
Ari er holumeistari G“S 2016

Holukeppni Golfklúbbsins Óss á Blönduósi sumarið 2016 lauk í dag. Keppnin, sem er útsláttarkeppni, hófst í lok júní og tóku tuttugu félagar úr golfklúbbnum þátt. Ari H. Einarsson, heiðursfélagi og aldursforseti golfklúbbsins, og Guðrún Ásgerður Jónsdóttir spiluðu til úrslita og lauk leiknum þannig að Ari sigraði á átjándu holu með snilldar pútti.

Fyrir hönd stjórnar og félaga í GÓS vil Jóhanna G. Jónsdóttir, formaður golfklúbbsins, óska Ara innilega til hamingju með sigurinn. „Aldur er enginn fyrirstaða í íþróttum, viðhorf og áhugi skiptir öllu máli. Tökum þátt og höfum gaman,“ sagði Jóhanna.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga