Fréttir | 29. september 2016 - kl. 09:13
Blönduósbær hefur fengið aðild að Samtökum orkusveitarfélaga. Í síðustu viku var inntökubeiðni sveitarfélagsins samþykkt á aðalfundi samtakanna. Aðildarsveitarfélögin eru þá orðin 21 talsins en þar á meðal er sveitarfélagið Húnavatnshreppur. Á aðalfundinum var ný stjórn samtakanna kosin og á Sigrún Hauksdóttir úr Húnavatnshreppi sæti í henni. Arnar Þór Sævarsson, bæjarstjóri á Blönduósi var kosinn varafulltrúi.
Stefán Bogi Sveinsson, bæjarfulltrúi á Fljótsdalshéraði, var kjörinn formaður samtakanna. Stefán Bogi tekur við formennskunni af Gunnari Þorgeirssyni, oddvita Grímsnes- og Grafningshrepps.
Samtök orkusveitarfélaga voru stofnuð árið 2011 og er markmið þeirra einkum að standa vörð um hagsmuni aðildarsveitarfélaga í öllum málum sem tengjast byggingu orkuvera og virkjana, orkunýtingu, fjárhagslegum hagsmunum í þessu sambandi og umhverfismálum.
Megináhersla hefur verið lögð á að þrýsta á um nauðsynlegar breytingar í skattaumhverfi orkuframleiðslu, með áherslu á fasteignagjöld, en einnig hafa samtökin látið sig varða lagaumhverfi vindorkuframleiðslu ásamt fleiri þáttum.
Ný stjórn var skipuð til tveggja ára:
Stefán Bogi Sveinsson, Fljótsdalshéraði, formaður
Árni Eiríksson, Flóahreppi
Dagbjört Jónsdóttir, Þingeyjarsveit
Gunnar Þorgeirsson, Grímsness- og Grafningshreppi
Kristín María Birgisdóttir, Grindavíkurbæ
Sigrún Hauksdóttir, Húnavatnshreppi
Unnur Lára Bryde, Hafnarfjarðarbæ
Arnar Þór Sævarsson, Blönduósbæ, varafulltrúi
Gunnsteinn Ómarsson, Ölfusi, varafulltrúi
Nanna Jónsdóttir, Ásahreppi, varafulltrúi
Þorsteinn Gunnarsson, Skútustaðahreppi, varafulltrúi