Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 07:00 0 0°C
Laxárdalsh. 07:00 0 0°C
Vatnsskarð 07:00 0 0°C
Þverárfjall 07:00 0 0°C
Kjalarnes 07:00 0 0°C
Hafnarfjall 07:00 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Fréttir | 29. september 2016 - kl. 15:50
Áætlunarferðir milli Keflavíkurflugvallar og Akureyrar settar á ís

Síðasta beina áætlunarferðin á vegum Gray Line milli Keflavíkurflugvallar og Aureyrar verður farin á morgun, föstudaginn 30. september. Ekki verður boðið upp á ferðirnar í vetur. Næstu mánuði verður metið hvort grundvöllur telst fyrir áframhaldandi ferðum næsta sumar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

„Það verður að segjast eins og er að nýtingin í þessum ferðum, sem hófust í apríl, hefur reynst mun lakari en við áttum von á," segir Þórir Garðarsson stjórnarformaður Gray Line. „Þar með er þó ekki sagt að við höfum misst trú á þessum ferðamöguleika. Bein lína frá Keflavíkurflugvelli er án vafa besti valkosturinn til að gera ferðamönnum kleifst að komast viðstöðulaust út á land. Sömuleiðis hentar þessi ferðamáti fólki að norðan ákaflega vel til að komast í flug og hægt að komast í rútuna á nokkrum stöðum á leiðinni, til að mynda í Skagafirði, Blönduósi, Staðarskála og Borgarnesi."

Þórir segir að margt megi læra af þessu verkefni. Fáir hafi til að mynda áttað sig á þeim möguleika að leiðin milli Akureyrar og flugvallarins lá um Reykjavík. Ekki þurfti endilega að fara til Keflavíkur, heldur var um að ræða raunverulegan valkost til að ferðast með lúxusrútu milli höfuðstaðar norðurlands og höfuðborgarinnar.

„Við vorum þar að auki vel samkeppnisfær við Strætó bs í fargjaldi, þó svo við þurfum að leggja virðisaukaskatt á fargjöldin, en Strætó ekki," segir Þórir.

Rútuferðir hagkvæmari en ríkisstyrkt flug
Þórir Garðarsson bendir á ein rútuferð á dag frá Keflavíkurflugvelli til Akureyrar geti skilað yfir 400 ferðamönnum á viku beint út á land. Á sama tíma sé ríkið að leggja 300 milljónir króna á ári í flugþróunarsjóð til að styrkja beint flug erlendis frá til Akureyrar og Egilsstaða.

„Tvær flugferðir í viku erlendis frá skila færri farþegum til Akureyrar en ein rúta sem fer á milli daglega frá Keflavíkurflugvelli. Vissulega er athugandi að kanna hvort beint flug erlendis frá geti skilað árangri. En það hefði í leiðinni verið full ástæða til að styðja við ferðavalkost Gray Line, sem er margfalt ódýrari en skilar sama eða meiri árangri," segir Þórir.

Hann bendir á tíðni flugferða til Keflavíkur máli sínu til stuðnings. Samkvæmt upplýsingum frá Túrista.is er áætlað að í janúar næstkomandi verði 30 flugferðir á dag til Keflavíkur og næsta sumar verði þær 85 á dag. Árangursríkt og hagkvæmt sé miðað við þennan fjölda að geta boðið upp á beinar og þægilegar rútuferðir beint út á land og utan af landi.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið