Tilkynningar | 03. október 2016 - kl. 22:17
Styrktarreikningur Guðnýjar Ragnars
Eftir Sunnu Hólm Kristjánsdóttur

Þann 18. apríl síðastliðinn greindist Guðný Ragnarsdóttir með illkynja eitlakrabbamein. Guðný byrjaði fljótt í strangri lyfjameðferð sem hún sækir á tveggja vikna fresti til Reykjavíkur og ferðir til Danmerkur á 1-2 mánaða fresti þar sem hún fer í jáeindaskanna til að fylgjast með áhrifum meðferðarinnar á æxlið. Hún hefur farið í fjóra aðgerðir og í ljós hefur komið að lyfin virka ekki sem skyldi og mun lyfjameðferð standa lengur en þá átta mánuði sem var lagt upp með í byrjun.

Í kjölfarið tekur svo við endurhæfingarferli. Má því búast við að baráttan, sem Guðný tekur af einstöku æðruleysi, taki í það minnsta tvö ár. Eins og við getum flest ímyndað okkur þá er það gríðarlegt áfall að fá krabbamein og nóg á lagt þó ekki komi fjárhagsáhyggjur í ofan á lag en Guðný er óvinnufær sökum meðferðarinnar. 

Guðný er eiginkona Bergþórs Pálssonar frá Sauðanesi og saman eiga þau drengina Guðlaug Hermann og Jónas Ragnar. Til að létta þeim róðurinn hafa nokkrar vinkonur tekið sig saman og stofnað söfnunarreikning, svo orka þeirra og athygli fari í að sigrast á sjúkdómnum og njóta lífsins sem er núna.

Söfnunarreikningurinn 307 13 300097, kt. 070882 5319, er á nafni Sunnu Hólm Kristjánsdóttur. Söfnuninni mun ljúka 5. desember.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga