Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:07 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:07 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:07 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:07 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:07 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:07 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sveitarstjórn Húnaþings vestra lýsir yfir áhyggjum af stöðu mála á vinnumarkaði og þeim áhrifum sem sú staða hefur á rekstri sveitarfélaga. Áhyggjurnar snúa að hugsanlegum hækkunum mótframlags sveitarfélaganna sem launagreiðenda til lífeyrissjóða. Ástæða hækkananna er tryggingafræðileg staða sjóðanna þar sem skuldbindingar eru umfram eignir. Áhrif þessara hækkana munu hafa gríðarleg áhrif á rekstur sveitarfélaga.
Fjallað var um þessar hugsanlegu hækkanir á fundi sveitarstjórnar í síðustu viku og afleiðingar þeirra fyrir sveitarfélagið. Áætlað er að rekstrargjöld Húnaþings vestra munu hækka um 13 milljónir á næsta ári að teknu tilliti til hækkunar lífeyrissjóðsiðgjalda og tryggingagjalds. „Það gefur augaleið að slík viðbótar útgjöld, ákveðin einhliða og án nokkurs fyrirvara eða aðlögunar, setja rekstur sveitarfélagsins í uppnám,“ segir í bókun sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn ætlar að bregðast við með því að taka upp vinnu við áætlanagerð fyrir árið 2017 en hún er vel á veg komin. Meðan annars mun sviðsstjórum verða gert að leita leiða með sínum forstöðumönnum til að skera niður í rekstri svo hægt verði að skila fjárhagsáætlun með jákvæðri afkomu. Í bókun sveitarstjórnar segir að ljós sé að það verði ekki auðvelt.
„Þessi hækkun til viðbótar við gríðarlegar afturvirkar launahækkanir undanfarin misseri, án þess að tekjur sveitarfélaga hækki samsvarandi, gera það að verkum að rekstur sveitarfélaga þyngist mikið ár frá ári. Lengi hefur verið rætt um fjölgun tekjustofna sveitarfélaga og er nú orðið afar aðkallandi að leiða þá umræðu til lykta. Að öðrum kosti munu mörg sveitarfélög án vafa lenda í rekstrarvanda á komandi misserum.”
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |