Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 23:37 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 23:37 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 23:37 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 23:37 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 23:37 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 23:37 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur falið Skógræktinni umsjón með framkvæmd verkefnis í búskaparskógrækt í Vestur-Húnavatnssýslu. Um er að ræða átak til eins ár sem felur m.a. í sér að þróa útfærslur á nýjum skógræktarverkefnum með það að markmiði að bæta búsetuskilyrði, fjölga tækifærum fyrir bændur, auka skógarþekju og brúa bil milli skógræktar og hefðbundins landbúnaðar. Verkefnið tengist einnig skrefum íslensks landbúnaðar í átt til kolefnishlutleysis.
Sagt er frá þessu á vef umhverfis- og auðlindarráðuneytisins. Þar kemur fram að ráðherra ýtti verkefninu úr vör í heimsókn í Miðfirði í gær að viðstöddum fulltrúum Skógræktarinnar, Bændasamtaka Íslands, sveitarstjórnar og heimafólki.
Gert er ráð fyrir að áhersla í skógræktarverkefnum verði á:
-
skjólbeltakerfi fyrir ræktun s.s. hvers konar jarðrækt.
-
skjóllundi fyrir búfé t.d. haustbeit stórgripa, sauðburðarhólf og önnur beitarhólf.
-
beitarskóga í tiltölulega stórum afgirtum beitarstýrðum hólfum.
-
landgræðsluskóga á illa eða ógrónu landi.
-
skjólskóga með fjölbreyttum trjágróðri þar sem tekist er á við staðbundin vindakerfi með það að markmiði að draga úr eða bægja frá sterkum vindstrengjum.
-
akurskógrækt á landi sem ekki nýtist til matvælaframleiðslu að svo stöddu.
-
fjölnytjaskóga með einhver af ofangreindum markmiðum sem og timburnytjar.
Skógræktin mun vinna með bændum að þessu verkefni, veita þeim ráðgjöf og fara yfir þá kosti sem verða í boði varðandi ofangreinda flokka skógræktar og hvernig þeir geta stutt við annan landbúnað og bætt skilyrði til búsetu. Leitað verður eftir viðhorfi bænda á svæðinu til núverandi stuðningskerfis í skógrækt og hvort og þá hverju þyrfti að breyta svo þeir sjái hag í þátttöku í því. Einnig verður leitað eftir samstarfi við hagsmunasamtök bænda.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |