Fréttir | 28. október 2016 - kl. 07:37
Jólamarkaður fyrirhugaður í Húnaveri

Fyrirhugað er að halda Jólamarkað í Húnaveri 4. desember næstkomandi. Í auglýsingu frá skipuleggjendum segir að markaðurinn verði með svipuðu sniði og undanfarin ár, hefst klukkan 13:30 og lýkur klukkan 18. Kvenfélag Bólstaðarhlíðarhrepps verður með kaffisölu á staðnum. Þeir sem eru áhugasamir að leigja borð eru hvattir til að hafa samband.

Söluborð til leigu; kr. 2000.- borðið. Einnig eru sviðið og anddyrið til leigu fyrir sölufólk (spyrjið um uppl. og verð).

Þeir sem eru áhugasamir að leigja sér borð hafi samband á netfangið; gh72@emax.is eða í síma; 452-7149 (Guðrún/Jóna).

Búið er að stofna Facebook síðu um markaðinn: https://www.facebook.com/groups/796656737103366/

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga