Ljósm: Jón Sig.
Ljósm: Jón Sig.
Ljósm: Jón Sig.
Ljósm: Jón Sig.
Ljósm: Jón Sig.
Ljósm: Jón Sig.
Ljósm: Jón Sig.
Ljósm: Jón Sig.
Ljósm: Jón Sig.
Ljósm: Jón Sig.
Ljósm: Jón Sig.
Ljósm: Jón Sig.
Ljósm: Jón Sig.
Ljósm: Jón Sig.
Fréttir | 15. nóvember 2016 - kl. 09:53
Skemmtileg minningarhátíð um Jónas

Um helgina hélt Tónlistarskóli Austur-Húnavatnssýslu skemmtilega og vel heppnaða tónleika í Blönduóskirkju til minningar um Jónas Tryggvason en í ár eru eitt hundrað ár liðin frá fæðingu hans. Fjölmenni var á tónleikunum, kirkjubekkirnir þétt setnir og góður rómur gerður að öllu því sem fram fór. Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps flutti lög eftir Jónas, m.a. tvö ný lög við ljóð Jónasar. Ingi Heiðmar Jónsson flutti minningabrot úr æfi Jónasar og Valgarður Hilmarsson fór yfir sögu tónlistarskólans.

Tónlistarfólk sem hóf nám við tónlistarskólann og hefur helgað sig tónlist síðan kom fram á tónleikunum svo og núverandi nemendur skólans og kennarar. Að lokinni dagskrá var boðið upp á kaffi og meiri tónlist í boði tónlistarskólans í Félagsheimilinu á Blönduósi. Tónleikar þessir voru styrktir af Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra.

Meðfylgjandi myndir eru teknar af Jóni Sigurðssyni. Á Facebook síðu Jóns má einnig sjá myndbrot frá tónleikunum, smellið hér.

Jónas Tryggvason  1916–1983
Jónas var fæddur í Finnstungu í Blöndudal 9. febrúar 1916, vann við bústörf með foreldrum sínum og systkinum á sínum ungu árum en fór suður til Blindrafélagsins til að kynna sér burstagerð þegar kom fram á fullorðinsár en sjóndepran fór að sækja á Jónas þegar á æskudögum. Hann flutti með Jóni bróður sínum og fjölskyldu hans að Ártúnum 1948 og fékk þar rýmri aðstöðu fyrir vaxandi iðnað sinn. Jónas byggði sér tvílyft hús að Húnabraut 26 á Blönduósi, flutti þangað 1959 og bjó þar til æviloka.

Hann tók mikinn þátt í félagsmálum, frá unga aldri söng hann með Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps þegar hann hafði aldur til, stjórnaði honum síðar í 6 ár og samdi lög fyrir kórinn og félaga sína þar. Sönghóp karla úr Lionsklúbbi Blönduóss æfði hann um árabil, kenndi söng við barnaskólann og spilaði við helgiathafnir á Héraðshælinu. Hann var brautryðjandi við stofnun Tónlistarfélags Austur-Húnvetninga og umsjónarmaður með tónlistarskóla héraðsins meðan kraftar hans entust.

Jónas kvæntist Þorbjörgu Bergþórsdóttur frá Fljótstungu. Hún var kennari við Barnaskólann á Blönduósi og áhugamaður um félags- og menningarmál eins og maður hennar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga