Blönduskóli
Blönduskóli
Tilkynningar | 28. nóvember 2016 - kl. 16:21
Jóla–notalegheit
Frá stjórn Foreldrafélags Blönduskóla og 10. bekk

Fimmtudaginn 1. desember mun Foreldrafélag Blönduskóla halda jóla–notalegheit í Blönduskóla frá kl. 17:00 – 19:00 þar sem allir koma saman, foreldrar og börn, ömmur og afar og allir hinir og föndra jólakort, mála piparkökur og nokkrir unglingar verða með spilastöð og kenna á spilin okkar. Pappír og ýmislegt fleira til jólakortaföndurs verður á staðnum en allir eru hvattir til að koma með liti, lím, skæri og fleira sniðugt til kortagerðar.

Piparkökur verða til sölu (5 kökur á 50 kr.) og verður boðið upp á glassúr til skreytingar.

Kaffihús samkvæmt venju og mun 10. bekkur vera með kaffisölu á þessum tíma og verður með opið kaffihús í matsalnum.

  • Vaffla/skúffukaka með drykk kr. 500

  • Vaffla/skúffukaka kr. 400

  • Kaffi kr. 200

  • Djús kr. 100

Nemendur frá Tónlistarskóla A-Hún. munu koma og spila fyrir gesti á kaffihúsi 10. bekkinga.

Hlökkum til að sjá ykkur stjórn Foreldrafélags Blönduskóla og 10. bekkur.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga