Ljósmynd: selasetur.is
Ljósmynd: selasetur.is
Fréttir | 29. nóvember 2016 - kl. 13:48
Selasetrið og Hafró undirrita samstarfssaming

Selasetur Íslands og Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafamiðstöð hafs og vatna, undirrituðu nýverið samstarfssamning til þriggja ára og tekur hann gildi frá og með næstu áramótum. Samningurinn tryggir að þrjú heilsársstörf líffræðinga Hafrannsóknastofnunar hjá Selasetrinu á Hvammstanga, í stað eins starfs áður.

Á myndinni sem fengin er af vef Selasetursins má sjá, til vinstri, Sigurð Líndal Þórisson, framkvæmdastjóra Selaseturs Íslands, og Sigurð Guðjónsson, forstjóra Hafrannsóknastofnunar, til hægri, við undirritun samningsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga