Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 18:19 0 0°C
Laxárdalsh. 18:19 0 0°C
Vatnsskarð 18:19 0 0°C
Þverárfjall 18:19 0 0°C
Kjalarnes 18:19 0 0°C
Hafnarfjall 18:19 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Nöldrið | 16. febrúar 2017 - kl. 15:53
Febrúarnöldur

Í fábreytni hversdagsins í  janúar og febrúar, þessa dimmu mánuði þegar hátíðleiki jólanna og hvellir áramótanna er liðinn er fátt sem gerist sem vert er um að fjalla. Að vísu gleðja þorrablótin sem haldin eru í sveit og bæjum, en nú eru þau líka búin og allir hafa fengið nóg af súrmat og hangikjöti í bili að minnsta kosti. Alltaf berst manni þó til eyrna ýmislegt sem er til umræðu í bænum okkar því alltaf eru bæjarbúar eitthvað að sýsla sjálfum sér eða öðrum til hagsbóta – vonandi.

Snemma í vetur var farið að ræða um að komið væri kauptilboð í Félagsheimilið og ætlaði væntanlegur kaupandi að breyta því í hótel. Fylgdi það sögunni að sveitarfélagsstjórnendum  litist vel á tillöguna. Væntanlegur kaupandi óskaði jafnframt eftir því að fá lóð við austari enda íþróttavallarins til að byggja tuttugu íbúða fjölbýlishús upp á fimm hæðir. Það eru sannarlega ekki allir íbúar Blönduóss jafn hrifnir og sveitarfélagsstjórnendurnir.  Finnst mörgum það  furðuleg hugmynd að ætla að troða hóteli á þetta litla svæði. Vitað er að stækka þarf húsið verulega eigi þar að vera hótel  og auka stórlega bílastæði og ætla svo að setja íbúðablokk ofan í allt saman er kannski aðeins of mikið.

Okkur vantar sannarlega ekki landrými hér og vilji einhver byggja hér hótel væru margir betri kostir í stöðunni og eflaust ódýrari en að fara að gera Félagsheimilið upp.  Ég sé til dæmis fyrir mér stórt  hótel á túnunum upp með norðulandsveginum sunnan árinnar. Það væri líka nóg pláss fyrir glæsilegt  útisvæði, bæði fyrir gesti og bíla. Svo er auðvitað spurning fyrir hvern þarf að byggja hótel, hér er ekki  mikið um feðamenn og ekki sjáanlegt að  þeim fjölgi eða hvað. Þá tel ég gáfulegri kost, eigi að byggja hér blokk upp á fimm hæðir, að hún sé staðsett í nágrenni við blokkina sem fyrir er innan við ána. Það er aðeins meira samræmi í því heldur en setja fimm hæða hús við Melabrautina þar sem fyrir er lágreist byggð. Ég man ekki betur en þegar blokkin á Hnjúkabyggð var byggð hefði verið ráðget að byggja þar fleiri blokkir. Sitt sýnist hverjum er sannarlega rétt, en ég hef heyrt það frá mörgum Blönduósingum að þeir mundu sjá eftir Félagsheimilinu, þó allir viti að húsið er mikill baggi á sveitarfélaginu.

En það eru  ekki bara Blönduósingar sem nýta þetta hús. Það gera  Húnvetningar allir fyrir alls konar stærri viðburði, svo von er að spurt sé: Hvert á að leita með t.d. 350 manna þorrablót og 200-300 manna erfisdrykkjur svo ekki sé minnst á leiksýningar ef húsið verður gert að hóteli? Ég veit að það er fáránleg óskhyggja að búast við að Húnvetningar allir gætu sameinast um að færa þetta  hús til  þeirrar virðingar sem því ber með því að gera það upp og nýta fyrir menningaratburði ásamt stærri viðburði eins og verið hafa í húsinu. Gera húsið að menningarhúsi Austur-Húnavatnssýslu.

Sarpur Ríkisútvarpsins er mikið þarfaþing hafi maður misst af áhugaverðu efni í útvarpinu eins og oft vill verða í erli dagsins. Mér var bent á einn slíkan pistil sem ég náði mér í á Sarpinum, en þar var rætt við frumkvöðlahjón hér á Blönduósi sem ég er ekki viss um að allir Blönduósingar viti um. Þessi hjón heita Inga Elsa Bergþórsdóttir og Gísli Egill Hrafnsson og reka veitingahús og gistingu við Brimslóð, nánast á fjörukambinum. Annað hjónanna er ljósmyndari en hitt grafískur hönnuður og hafa þau gefið út nokkrar matreiðslubækur sem búið er að þýða  á mörg tungumál. Í þessum bókum  kennir sannarlega margra grasa og þær prýða myndir héðan úr nágrenninu. Þau hjón nýta flestan jarðargróður  ásamt því að rækta allskonar grænmeti  og meira að segja búa til sitt eigið salt, sem þau vinna úr sjónum neðan við veitingahúsið sitt.

Nú er svo komið að þau anna vart eftirspurn erlendra ferðamanna sem sækja  um að koma til þeirra og dvelja hér nokkra daga við náttúruskoðun ásamt því að læra að elda úr framandi hráefni sem þau hjón kenna. Ég vissi af framkvæmdum þessara hjón við gamla verkstæðið sem þau keyptu og hafa gert upp, en ég gerði mér ekki grein fyrir hversu umfangsmikil þessi starfsemi þeirra væri orðin. Ef þetta er ekki frumkvöðlastarfsemi þá veit ég ekki í hverju hún felst.

Það er ekki hægt að ljúka þessum skrifum öðruvísi en að þakka fyrir þá einmuna veðurblíðu sem við höfum búið við það sem af er þessum vetri. En kannski á hún eftir að hefna sín eins og konan sagði.

Besta kveðja frá Nöldra.

Höf. Nöldri
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið