Fréttir | 18. febrúar 2017 - kl. 11:11
Tröll í Félagsheimilinu á Blönduósi - AFLÝST vegna bilunar í ljósabúnaði

Handbendi - brúðuleikhús, sem er atvinnuleikhús Norðurlands vestra, sýnir leikritið Tröll í Félagsheimilinu á Blönduósi á morgun, sunnudaginn 19. febrúar. Sýningin er innblásin af íslensku þjóðsögunum, án þess að vera endursögn á þeim. Tröll er endurtúlkun á sumum vinsælustu tröllasögum landsins, sögð með sjónarhorni lítillar telpu og óvanalega vininum hennar úr fjöllunum.

Brúðurnar eru handgerðar, og hljóðmyndin er samin af hinu virta breska tónskáldi Paul Mosley, en söngurinn er í höndum heimamanna í Húnaþingi vestra. Þetta er svolítil þjóðsaga, smá draugasaga, eintómir töfrar. Tröll eru ógleymanleg leikhúsupplifun fyrir alla fjölskylduna.

„Ég trúi á Truntum Runtum og tröllin mín í klettunum.“
Í 17 milljón ár (gæti skeikað um öld eða tvær) hafa tröllin átt þessa eyju alveg fyrir sig. Þau grófu gljúfur, gerðu sér heimilislega skúta, og nutu kyrrðar og friðar miðnætursólarinnar. Tröllin voru glöð. En núna… Núna er allt breytt. Mannfólkið er komið. Það byggir hús. Leggur vegi. Hefur hátt… Svo óskaplega hátt. Geta þessar ólíku verur búið saman?

Framleitt og skapað af Handbendi – brúðuleikhúsi.
Leikstjóri: Sigurður Líndal Þórisson.
Leikskáld og hönnuður: Greta Clough.
Tónskáld: Paul Mosely.
Brúðuleikarar: Greta Clough og Aldís Davíðsdóttir.
Ljósahönnuður: Aðalsteinn Stefánsson

Sjá nánar á Facebook.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga