Frá Blönduósi
Frá Blönduósi
Fréttir | 18. febrúar 2017 - kl. 11:22
Engin tilfelli um misbeitingu valds

Sveitarfélagið Skagafjörður segir engin tilfelli hafa komið upp þar sem kviknað hafi grunur um að starfsfólk á sambýlum sveitarfélagsins misbeiti valdi sínu frá því sveitarfélagið tók við ábyrgð þjónustu á sambýlinu á Blönduósi í ársbyrjun 2016. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá sveitarfélaginu vegna fréttar sem birt var í Ríkissjónvarpinu í vikunni. Þar sagði frá úrskurði sérfræðiteymis innan velferðarráðuneytisins síðan í fyrra um að ólögmætri nauðung og þvingun væri beitt á sambýlinu á Blönduósi. Brotalamir hafi verið í starfsemi sambýlisins frá árinu 2011. 

Í yfirlýsingu frá Sveitarfélaginu Skagafirði segir að það hafi tekið við ábyrgð á þjónustu við fatlað fólk á Norðurlandi vestra í ársbyrjun 2016. Það hafi verið gert með samningi allra sjö sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra um sameiginlegt þjónustusvæði um þjónustu við fatlað fólk. Frá árinu 2011 höfðu sveitarfélögin verið í samstarfi innan byggðasamlags um málefni fatlaðs fólks, ásamt Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð, þar sem ábyrgð á þjónustunni var þó hjá hverju félagsþjónustusvæði fyrir sig.

Í yfirlýsingunni segir að þær aðgerðir sem sveitarfélagið hefur gripið til síðan séu:

  • Fundað var með réttindavakt Velferðarráðuneytisins og farið yfir áform sveitarfélagsins um aðgerðir til úrbóta.

  • Ráðgjafi í málefnum fatlaðs fólks var ráðinn til þess að vera sveitarfélaginu innan handar við úrbætur.

  • Fylgt var leiðbeiningum sérfræðiteymis Velferðarráðuneytisins um aðgerðir til að draga úr nauðung við fatlað fólk.

  • Ráðinn var forstöðumaður með menntun í þroskaþjálfafræði.

  • Stöðugildum starfsfólks við heimilið var fjölgað og vaktafyrirkomulagi breytt.

  • Markvisst hefur verið unnið að því að miða þjónustuna betur að þörfum einstaklinganna ásamt því að veita sértæka ráðgjöf og stuðning til starfsmanna heimilisins.

  • Komið var á samvinnu við Heilbrigðisstofnun Norðurlands varðandi heilsu og vellíðan íbúanna.

  • Hafnar voru viðræður við húseiganda um breytingar á húsnæðinu sem miða að því að breyta því í sérbýli.

Þá segir í yfirlýsingunni að engin tilfelli hafi komið upp þar sem kviknað hafi grunur um að starfsfólk misbeiti valdi sínu síðan Sveitarfélagið Skagafjörður hafi tekið við ábyrgð þjónustu á sambýlinu á Blönduósi. Starfsfólk sambýlisins vinni heilshugar að ofangreindum úrbótum í samstarfi við sveitarfélagið. Sveitarfélagið Skagafjörður leggi ríka áherslu á að vel sé staðið að allri þjónustu við íbúa sambýlisins á Blönduósi og að áfram verði markvisst unnið að úrbótum í þjónustu við íbúa og þeirri vinnu hraðað sem kostur er.

Sveitarfélagið Skagafjörður tekur undir áherslur félags- og jafnréttismálaráðherra um að fjölga beri réttindagæslumönnum fatlaðs fólks og að aukið sé við eftirlit með starfsemi þjónustu við fatlað fólk.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga