Fréttir | 20. febrúar 2017 - kl. 09:06
Húnvetningafélagið boðar til félagsfundar

Stjórn Húnvetningafélagsins í Reykjavík hefur samþykkt tilboð sem borist hefur í fasteign félagsins, Húnabúð í Skeifunni 11 í Reykjavík. Stjórnin hefur boðað til félagsfundar Húnvetningafélagsins 27. febrúar næstkomandi klukkan 20 í Húnabúð. Efni fundarins er ákvörðun félagsfundar um sölu á fasteigninni. Fyrir fundinum liggur tillaga stjórnar um samþykkt félagsfundar samkvæmt 12. grein í lögum félagsins.

Í fundarboði sem birt er í Fréttablaðinu í dag kemur fram að áríðandi sé að félagsmenn mæti og taki afstöðu í þessari mikilvægu ákvörðun er varði hag félagsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga