Tilkynningar | 21. febrúar 2017 - kl. 19:24
Orlofsferð húsmæðra í Austur-Húnavatnssýslu dagana 1. - 2. apríl 2017
Tilkynning

Þá er komið að skemmtiferðinni okkar! Rúta leggur af stað laugardaginn 1. apríl 2017 klukkan 09:40 frá Blönduósi og klukkan 10 frá Skagaströnd, til Siglufjarðar. Gisting á Hótel Sigló, þríréttuð kvöldmáltíð og Brunch í hádeginu á sunnudag. Nánari dagskrá þegar nær dregur.

Við þurfum að fá þátttökutilkynningu fimmtudaginn 23. febrúar milli klukkan 17-19.

Þórdís Hjálmarsdóttir sími 8991119

Sigríður Stefánsdóttir sími 7741434

Staðfestingargjald kr. 5.000 greiðist inn á reikning 0307-13-300731 kt. 510578-0909 í síðasta lagi 1.mars 2017.

Ferðin er fyrir konur sem lögheimili eiga í Austur Húnavatnssýslu og veita heimili forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga