Fréttir | 27. febrúar 2017 - kl. 14:53
Hundraðasta ársþing USAH 12. mars 2017

Hundraðasta ársþing Ungmennasambands Austur-Húnvetninga verður haldið á Húnavöllum sunnudaginn 12. mars næstkomandi og hefst klukkan 10:00. Á dagskrá þingsins eru hefðbundin þingmál eins og framlagning skýrslu stjórnar og endurskoðaðra reikninga, skipun þingnefnda og kosningar. Þá verða Hvatningaverðlaun USAH afhent og gestir ávarpa þingið.

Dagskrá þingsins í heild sinni er þessi:

  1. Þingsetning.
  2. Kosning fyrsta þingforseta sem tekur þegar til starfa.
  3. Kosning þriggja manna kjörbréfanefndar og tekur hún þegar til starfa.
  4. Kosning annars þingforseta og fyrsta og annars þingritara.
  5. Lögð fram skýrsla stjórnar og endurskoðaðir reikningar.
  6. Álit kjörbréfanefndar.
  7. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir upp til samþykktar.
  8. Ávörp gesta.
  9. Skipun þingnefnda, tillögur lagðar fyrir nefndir. Nefndir taka til starfa.
  10. Hvatningarverðlaun USAH, viðurkenning fyrir íþróttamann ársins 2016 afhent og hádegisverður.
  11. Tillögur og nefndarálit tekin til afgreiðslu.
  12. Önnur mál.
  13. Kosningar  - álit kjörnefndar.
    1. Kosið í stjórn og varastjórn.
    2. Kosinn skoðunarmaður reikninga til tveggja ára og varamaður hans.
    3. Kosið í fastanefndir.
    4. Kosið í ritnefnd Húnavöku skv. 14. gr. laga USAH.
  14. Fundargerð þingsins borinn upp til samþykktar.
  15. Þingslit.
Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga