Fréttir | 01. mars 2017 - kl. 16:10
Ný heimasíða Húnaþings vestra

Sveitarfélagið Húnaþing vestra opnaði nýja heimasíðu í dag í nýju viðmóti. Markmiðið með breytingunum er að gera upplýsingar aðgengilegri og miðla þannig betri upplýsingum til íbúa sveitarfélagsins og annarra áhugasama, að því er segir á nýju vefsíðunni. Allir sem hafa góðar hugmyndir og ábendingar varðandi heimasíðuna eru hvattir til að hafa samband á netfangið skrifstofa@hunathing.is.

Undir flipunum Stjórnsýsla, Þjónusta og Mannlíf er að finna það er tengist stjórnkerfi og þjónustu sveitarfélagsins ásamt ýmsu sem varðar mannlífið.

Hægt er að senda inn tilkynningu um erindi og atburði sem eru á döfinni með því að smella á hnappinn „Senda inn viðburði“ hér neðar á forsíðunni.

Vefsíðan verður í stöðugri þróun, flestar upplýsingar eru komnar inn á nýju síðuna sem voru á eldri vefsíðunni en smátt og smátt munum við uppfæra og laga það sem betur má fara. 

Sjá nýja heimasíðu Húnaþings vestra hér: www.hunathing.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga