Tilkynningar | 02. mars 2017 - kl. 16:00
BING“ “ BING“
Frá 9. bekk Húnavallaskóla

Nú er komið að hinu árlega stórbingói 9. bekkjar Húnavallaskóla. Það verður haldið næstkomandi föstudag, þann 3. mars. Húsið opnar kl. 19:30 og bingóið hefst kl. 20:00. Eftir bingóið verður diskótek til kl. 00:30. Á bingóinu verður fullt af flottum og veglegum vinningum. Tombólan verður auðvitað á sínum stað, þannig að allir fá eitthvað!! Það verða ENGIN NÚLL!!

Miðaverð

16 ára og eldri 2500 kr.

7 – 15 ára 1000 kr.

Ókeypis fyrir börn 6 ára og yngri.

Aukaspjöld kosta 300 kr.

Að bingóinu loknu mun verða glæsilegt kaffihlaðborð sem er innifalið í aðgangseyrinum.

Allir að mæta og skemmta sér ótrúlega vel !

Munið eftir góða skapinu smiley

Ath. ekki er tekið við greiðslukortum

9. bekkur Húnavallaskóla

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga