Tilkynningar | 03. mars 2017 - kl. 13:09
Ísmót á sunnudaginn - FRESTAST

Þar sem ís er aftur kominn á Svínavatn hefur verið ákveðið með skömmum fyrirvara að efna til ísmóts á sunnudaginn, 5. mars klukkan 13:00.

Keppt verður í tölti í opnum flokki, flokki áhugamanna og 16 ára og yngri svo sem verið hefur. Riðin verður ein ferð á hægu tölti, tvær ferðir hraðabreytingar og ein ferð á yfirferðartölti.

Ef möguleiki er á verður bæjarkeppni að tölti loknu.

Skráning berist fyrir miðnætti laugardaginn 4. mars á netfangið valur@gamar.is. Skráningargjöld eru 1.000 kr.

Allar kvartanir, skammir og óánægja berist í pósti að Brekkubyggð 4.

Nefndin.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga