Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 01:13 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 01:13 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 01:13 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 01:13 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 01:13 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 01:13 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sagnaarfur Íslendinga og þó sérstaklega Húnvetninga var til umfjöllunar í fundaröð húnvetnsku félaganna og U3A sem lauk miðvikudaginn 15. mars með söng Húnakórsins. Á þessum síðasta fundi talaði Bóthildur um nöfnur sínar og formæður, dró upp myndir af baráttu ekkjunnar, ömmu sinnar í fátæku landi og ómjúku samfélagi. Sölvi var fyrri fyrirlesari og hóf fundinn með því að skerpa sýnina á þetta séríslenska fyrirbrigði sem sagnaþættir eru. Þar fléttast saman ættfræði, sögur úr munnlegri geymd, sakamál og grimm örlög en tilreidd á fögru máli og skráð beint á bók. Því pappír var dýr en kollurinn skýr fræðimannanna. Athyglisverða rannsókn hafði fyrirlesari gert á bókaröð Hannesar Pétursson Misskipt er manna láni þar sem Sölvi safnaði saman orðum þeim sem Hannes notar er menn deyja. Það var löng syrpa og kenndi þar ýmissa grasa.
Með fundarröðinni nú í mars er lokið þremur lotum sem hófust í fyrravetur með Jóni Torfasyni að fjalla um Húnaþing eystra, en þá var U3A og Jón Björnsson bakhjarl fyrirtækisins í samvinnu við Húnvetningafélagið í Reykjavík. Í vetur bættist Sögufélagið Húnvetningur í hópinn sem stendur að samkomunum og sömuleiðis voru nú í mars boðnar bækur til sölu og löðuðu til sín fáeina kaupendur. En Húnakórinn gerði tvennt með komu sinni í Húnabúð í gær, að flytja fundargestum lög að norðan en þrjú þeirra voru samin af kórfélögum og söngstjóranum, Eiríki Grímssyni. Hann samdi það á afmælisári Jónasar Tryggvasonar í fyrra – og við ljóð eftir hann, Draumurinn. Þökk sé Eiríki fyrir þetta góða lag, sem einnig rifjar upp ljóðið Jónasar og fleiri sem hann orti á annasömum dögum sínum. Annað var að með komu sinni setti kórinn setti punktinn yfir iið á lokamínútunum í fundaröðinni og fyllti Húnabúðina af fólki. Það var einnig ánægjulegt nýmæli í þessari síðustu fundaröð að hún hófst 1. mars með kynningu Lárusar Ægis á ritum sínum um Skagaströnd en lauk með sögum Bóthildar norðan af Blönduósi af ömmum sínum og vinum úr Svartárdalnum.
Síðdegissamkomur í Húnabúð í mars http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=13553
Draumurinn ljóð JTr.: http://bragi.info/hunafloi/ljod.php?ID=5022&ut=1
Pistill þar sem séra Gunnar og Guðmundur frá Bergsstöðum koma við sögu: http://www.huni.is/index.php?pid=58&cid=11279
Heimsókn Húnakórsins til Flóamanna í febrúar 2016: http://www.huni.is/index.php?cid=12589
Ingi Heiðmar Jónsson
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |