Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 16:08 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 16:08 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 16:08 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 16:08 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 16:08 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 16:08 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Héraðsþing Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga var haldið á miðvikudaginn í félagsheimilinu Víðihlíð og var það vel sótt. Ungmennafélagið Víðir sá um utanumhald þingsins að þessu sinni. Góðir gestir komu í heimsókn, frá UMFÍ þær Sabína Steinunn Halldórsdóttir landsfulltrúi og Auður Inga Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri, og frá ÍSÍ þau Þórey Edda Elísdóttir fyrsti varamaður í stjórn og Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri á Akureyri.
Tilkynntar voru breytingar á framkvæmdastjóra USVH en Sveinbjörg Pétursdóttir hefur óskað eftir ársleyfi frá störfum og mun Eygló Hrund Guðmundsdóttir koma til með að leysa hana af störfum í millitíðinni.
Kosið var um varaformann, gjaldkera, ritara, og þrjá varamenn. Halldór Sigfússon var kosinn til varaformanns, Ómar Eyjólfsson til gjaldkera, Sara Ólafsdóttir til ritara, Sveinbjörg Pétursdóttir til fyrsta varamanns, Ingveldur Linda Gestsdóttir til annars varamanns og Ragnar Bragi Ægisson til þriðja varamanns. Sigurbjörg Jóhannesdóttir, Vigdís Gunnarsdóttir og Elín Jóna Rósinberg hættu störfum fyrir stjórn USVH og voru þeim færðar þakkir fyrir vel unnin störf ásamt blómvendi. Elínu Jónu var jafnframt veitt gjafabréf að skilnaði fyrir 16 ára störf sem gjaldkeri félagsins.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |