Fréttir | 30. mars 2017 - kl. 09:18
Undanfarna daga hefur fyrirspurnum rignt yfir ráðherra ríkisstjórnarinnar á Alþingi. Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að í þessari og síðustu viku hafi alþingismenn lagt fram 53 fyrirspurnir til ráðherra og óskað eftir munnlegum eða skriflegum svörum. Bjarni Jónsson, varaþingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi er fyrirspurnakóngurinn en í þá nokkra daga sem hann sat á alþingi lagði hann fram 16 fyrirspurnir, þar af 14 á mánudaginn var.
Bjarni vildi fá svör við hinum margvíslegustu spurningum, svo sem um vegamál, Hvalfjarðargöng og Spöl, geðheilbrigðisþjónustu barna, laxastofna, Alexandersflugvöll, sjókvíaeldi, verðmæti veiða í ám og vötnum og stöðu háskóla utan Reykjavíkur.
Þingmálapakka Bjarna má sjá hér.