Fréttir | 30. mars 2017 - kl. 14:50
Lóuþrælar syngja vorið í borgina

Karlakórinn Lóuþrælar heldur tónleika í Seltjarnarneskirkju, laugardaginn 8. apríl næstkomandi klukkan 14:00. Söngstjóri er Daníel Geir Sigurðsson. Elinborg Sigurgeirsdóttir sé um undirleik á píano og Ellinore Andersson á fiðlu. Einsöngvarar eru Friðrik M. Sigurðsson, Guðmundur Þorbergsson og Skúli Einarsson. Aðgangseyrir er 3.000 krónur en frítt fyrir 14 ára og yngri. Engin kortaposi verður á staðnum.

“Syngjum vorið í borgina. Komið og eigið með okkur ánægjulega stund,” segir í tilkynningu frá kórnum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga