Frá Blönduósi
Frá Blönduósi
Fréttir | 30. mars 2017 - kl. 15:10
Sumarstörf hjá Blönduósbæ

Blönduósbær auglýsir á heimasíðu sinni eftir flokksstjórum og sumarstarfsmönnum til starfa í Þjónustumiðstöð Blönduósbæjar og vinnuskóla frá 15. maí eða eftir nánara samkomulagi. Í auglýsingunni kemur fram að æskilegt er að umsækjendur um störf flokkstjóra séu 20 ára eða eldri.

Þá vantar starfsfólk til sumarstarfa, 17 ára og eldri. Umsóknarfrestur er til 18. apríl næstkomandi.

Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Blönduósbæjar undir „eyðublöð“ og á bæjarskrifstofu, Hnjúkabyggð 33. Nánari upplýsingar á skrifstofu Blönduósbæjar í síma 455 4700. Umsóknir má senda á netfangið agust@blonduos.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga