Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi
Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi
Fréttir | 23. apríl 2017 - kl. 10:48
Sjúkraflutningamenn segja upp störfum

Nær allir sjúkraflutningamenn hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi hafa sagt upp störfum vegna vanefnda fjármála- og efnahagsráðuneytisins við að ljúka vinna við endurskoðun kjarasamninga. Uppsagnafrestur þeirra er einungis tuttugu og átta dagar þrátt fyrir margar ára starf. Sagt er frá þessu á Vísir.is.

Þar segir að um miðjan desember 2015 undirrituðu samninganefndir fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Landssambands slökkviliðs og sjúkraflutningamanna samkomulag um breytingar á kjarasamningi sjúkraflutningamanna í hlutastarfi. Með samningnum framlengdist gildandi kjarasamningur þessara aðila til 31. mars 2019 en á samningstímanum átti sérstök nefnd að vinna úttekt á störfum hlutastarfandi sjúkraflutningamanna þar sem þróun sjúkraflutninga síðastliðin fimmtán ár hefur verið með þeim hætti að fyrirkomulag ráðninga og kjara geti ekki verið með óbreyttum hætti miðað við þær kröfur sem gerðar eru í dag.

Nefnd sem fjármálaráðuneytið setti saman átti að vinna að skýrslu þar sem úttekt yrði gerð á umfangi og eðli sjúkraflutninga á þeim svæðum sem samningurinn næði til en nefndin hefur aldrei skilað niðurstöðum. Þessari vinnu átti að vera lokið fyrir fyrsta desember á síðasta ári og taka gildi um síðustu áramót.

Fimm af sjö hlutastarfandi sjúkraflutningamanna á Blönduósi hafa þegar sagt starfi sínu lausu vegna vanefnda ríkisins og er Þórður Pálsson er einn þeirra. Aðspurður hvers vegna gripið sé til þessara aðgerða núna segir Þórður það aðallega vera vegna mikillar óánægju með laun og svikinna loforða. „Í fyrsta lagi erum við í raun ekki með kjarasamning. Það er bara samkomulag við fjármálaráðherra um hvernig okkar kjör eiga að vera,“ segir Þórður í samtali við Vísir.is.

Sjá má frétt Vísir.is í heild sinni hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga