Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 01:48 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 01:48 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 01:48 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 01:48 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 01:48 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 01:48 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sveitarsjóður Skagastrandar skilaði 22,7 milljón króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu árið 2016 samanborgið við 33,5 milljón króna jákvæða afkomu árið áður. Reyndist niðurstaða 26,7 milljónum betri en fjárhagsáætlun með viðaukum gerði ráð fyrir. Í ársreikningi kemur fram að rekstrartekjur samstæðunnar námu 559 milljónum króna í fyrra en voru 576,6 milljónir árið 2015 og nemur lækkunin 3,1% milli ára. Rekstrargjöld námu 551,3 milljónum en voru 561,1 milljón 2015.
Tap var af rekstri A hluta fyrir afskriftir, fjármunatekjur og fjármagnsgjöld að fjárhæð 1,8 milljón en rekstrarniðurstaðan jákvæð um 6,5 milljónir.
Heildareign sveitarfélagsins námu í árslok 2016 1.706 milljónum króna og eigið fé var um 1.247 milljónir. Langtímaskuldir námu 259,2 milljónum og tilheyra þær eingöngu félagslegum íbúðum. Veltufjárhlutfall samstæðunnar nam 14,59 en var 13,06 í árslok 2015.
Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi var veltufé frá rekstri samstæðunnar 81,7 milljónir og handbært fé frá rekstri var 80,5 milljónir. Engin ný lán voru tekin á árinu. Handbært fé samstæðunnar nam 539,9 milljónum í árslok auk 124,5 milljóna króna skammtímaverðbréfaeignar en handbært fé var 490,7 milljónir í árslok 2015.
Síðari umræða um ársreikninginn sveitarsjóðs og stofnana Skagastrandar 2016 fór fram á fundi sveitarstjórnar í gær og var hann samþykktur að lokinni umræðu.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |