Ljósm: hunathing.is
Ljósm: hunathing.is
Fréttir | 23. maí 2017 - kl. 15:05
Götusópun í þéttbýli í Húnaþingi vestra

Næstu daga fer fram götusópun í Húnaþingi vestra. Sópað verður á Borðeyri, við Reykjatanga, Laugarbakka og Hvammstanga. Allir íbúar, og sérstaklega forsvarsmenn fyrirtækja og rekstraraðila, eru hvattir til að taka til í sínu nærumhverfi, raða upp heillegum hlutum og henda því sem ónýtt er. Óski fyrirtæki eftir aðstoð við hreinsun eða flutningi á úrgangi til Hirðu (gámastöð), munu starfsmenn áhaldahúss verða við því eftir því sem tími og aðstæður leyfa.

Símanúmer áhaldahússins á Hvammstanga er 894-2909.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga