Fréttir | 25. maí 2017 - kl. 09:57
Opnun sumarsýningar Heimilisiðnaðarsafnsins

Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins, Prjónað af fingrum fram, verður opnuð sunnudaginn 28. maí klukkan 15. Sýningin er samstarfsverkefni Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi, Heimilisiðnaðarfélags Íslands og Kristínar Schmidhauser Jónsdóttur sem er höfundur samnefndar bókar um Aðalbjörgu Jónsdóttur. Aðalbjörg, sem varð 100 ára þann 15. desember síðastliðinn, mun ásamt dóttur sinni Ragnhildi Hermannsdóttur, opna sýninguna og Íris Árnadóttir langömmubarn Aðalbjargar mun syngja við opnunina.

Í tilefni dagsins eru konur sem eiga handprjónaða kjóla hvattar til að draga þá fram í dagsljósið og klæðast þeim. Eftir opnunina verður viðstöddum boðið upp á kaffi og tilheyrandi.

Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga