Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 26. maí 2017 - kl. 14:29
Þrifahönd á Skagaströnd

Sveitarfélagið Skagaströnd skorar á íbúa að taka sig til og hreinsa bæði hjá sér og í sínu nánasta umhverfi á morgun, laugardaginn 27. maí. Endurvinnslustöðin verður opin frá klukkan 13 til 17 og ekkert gjald er tekið fyrir úrgang sem berst þennan dag.  „Nú vorar sem óðast og senn líður að sumri. Það er því kominn tími til að taka til hendinni og þrífa eftir veturinn,“ segir í auglýsingu frá sveitarstjóra á vef Skagastrandar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga