Fréttir | Tilkynningar | 31. maí 2017 - kl. 12:01
Sumargaman 2017
Frá Palla, Þóru og Snjólaugu

Þann 12. júní hefst Sumargamanið okkar þetta sumarið. Við byrjum á kofabyggingunum eins og alltaf fyrstu 2 vikurnar og svo tekur við eintómt fjör og gleði í 4 vikur.

Hún Þóra Dögg ætlar að vera með námskeiðið í sumar og fær dygga aðstoð frá unglingunum í vinnuskólanum.

Búið er að senda tölvupóst á foreldra allra barna í 1.-4. bekk og farið var með umsóknir á elstu deild leikskólans. Umsóknarfrestur er til 7. júní, skilist niður á bæjarskrifstofu. Þar er einnig hægt að fá umsóknareyðublöð.

En við viljum einnig minna á Sumargamans síðuna okkar sem að er á þessari slóð, endilega skráið ykkur inn á hana. https://www.facebook.com/groups/558694167577809/

Hlökkum til að sjá ykkur í sumar

Palli, Þóra og Snjólaug

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga