Tilkynningar | 08. júní 2017 - kl. 10:49
Úrtaka vegna fjórðungsmóts Vesturlands
Frá mótanefnd Neista

Föstudaginn 16. júní klukkan 20:00 verður haldin úrtaka á skeiðvellinum á Blönduósi hjá hestamannafélaginu Neista vegna fjórðungsmóts Vesturlands sem haldið verður 28. júní til 2. júlí. Keppt verður í A og B flokki gæðinga, ungmennaflokki, unglingaflokki og barnaflokki. Skráning fer fram á Sportfeng og skal lokið miðvikudagskvöldið 14. júní.

Skráningargjöld í fullorðins- og ungmennaflokki er kr. 3000 en 2.500 kr. í unglinga og barnaflokki.

Mótanefnd Neista.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga