Tilkynningar | 09. júní 2017 - kl. 13:41
Aukaársfundur Stapa
Frá Stapa lífeyrissjóði

Aukaársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn fimmtudaginn 22. júní 2017 klukkan 13:00 í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Athygli skal vakin á að allir sjóðsfélagar eiga rétt til setu á fundinum með málfrelsi og tillögurétti.

 Dagskrá fundarins:

  1. Setning aukaársfundar

  2. Breytingar á samþykktum sjóðsins

  3. Önnur mál

Breyta þarf samþykktum sjóðsins svo launamenn geti frá 1. júlí nk. ráðstafað iðgjaldi umfram 12% í svokallaða tilgreinda séreign líkt og kveðið er á um í kjarasamningi ASÍ og SA frá 21. janúar 2016.

Tillögur að breytingum eru aðgengilegar á vef sjóðsins, www.stapi.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga