Tilkynningar | 13. júní 2017 - kl. 10:12
Efnilegur stóðhestur á Hæli
Frá Jonna á Hæli

Mugison frá Hæli tekur á móti merum í sumar á Hæli. Mugison er undan Spuna frá Vesturkoti og Dáð frá Blönduósi, hún á 7 dæmd afkvæmi og 5 af þeim hafa hlotið 1. verðlaun. Meðaleinkunn allra afkvæma er 8,16.

Mugison var sýndur núna 5 vetra, þar sem hann fékk 8,19 fyrir sköpulag og 8,47 fyrir kosti þar af 8,5 fyrir tölt, 9 fyrir skeið og vilja og 8,5 fyrir fegurð í reið. Aðaleinkunn 8,36.

Verð á fengna hryssu er 50.000 kr + vsk

Upplýsingar í síma 898-9402, Jonni á Hæli

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga