Tilkynningar | 20. júní 2017 - kl. 09:47
Gunnfríðarstaðir - vinnukvöld og veitingar
Frá Skógræktarfélagi Austur-Húnvetninga

Vinnukvöld verður í Gunnfríðarstaðaskógi fimmtudaginn 22. júní 2017. Hafist verður handa um klukkan 17:00 og verið að til klukkan 20:00.

Unnið við ýmsa umhirðu í skóginum við skógarkofann. Dreginn út trjáviður, gróðursett, girðingarvinna og fleira.

B&S Restaurant verða með súpu og brauð fyrir skógargesti.

Skógarkveðja
Skógræktarfélag Austur-Húnvetninga

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga