Fréttir | 20. júní 2017 - kl. 15:51
Opið hús í Nesi listamiðstöð

Fimmtudaginn 22. júní verður opið hús í listamiðstöðinni Nesi á Skagaströnd frá klukkan 16 til 18. Klukkan 17 verður heimsfrumsýning á stuttmyndinni „Wait“, eftir Emily Prism og Zephyr Amethyst. Íslenskan texta gerði Laufey Lind Ingibergsdóttir. Klukkan 17:30 verður sjónræn kynning og upplestur í höndum Mimi Cabell og Phoebe Stubbs.

Listamennirnir sem hafa veg og vanda að opnu húsi í Nesi eru:

Mimi Cabell
Gerlinde Creutzburg
Rachel Eng
Tina Flau
Erinn Heilman
Marie Helpin
Imogen Kotsoglo
Zack Lamoureux
Kate McConnan
Dana Neilson
Tuomo Savolainen
Mitch Shiles
Phoebe Stubbs
Emily Prism
Zephyr Amethyst

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga