Aðalheiður
Aðalheiður
Aðalheiður
Aðalheiður
Aðalheiður Íslandsmeistari
Aðalheiður Íslandsmeistari
Fréttir | 26. júní 2017 - kl. 19:42
Aðalheiður Ingvarsdóttir varð íslandsmeistari í spjótkasti 11 ára stúlkna
Frá USAH

Einn þátttakandi fór fyrir hönd USAH á Meistaramót Íslands 11 – 14 ára í frjálsum íþróttum núliðna helgi. Það var hún Aðalheiður Ingvarsdóttir frá Hólabaki og stóð hún sig með stakri prýði.

Hún varð í 1.sæti í spjótkasti með kast upp á 20,59m en mótsmetið er 21m auk þess kastaði hún rúmum 3m lengra en sú sem lenti í 2.sæti.  Í 60m spretthlaupi varð hún 9.sæti, hún hljóp á tímanum 9,86sek. Í kúluvarpi varð hún í 3.sæti með kast upp á 6.96m og í langstökki varð hún í 6.sæti með stökk upp á 3,86m. Í hennar flokki voru 22 þáttakendur í flestum þessara greina.

Viljum við hjá USAH óska henni innilega til hamingju með þennan flotta árangur!

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga