Fréttir | 27. júní 2017 - kl. 15:16
Umsóknir í Húnasjóð 2017

Skriflegar umsóknir um styrk úr Húnasjóði vegna ársins 2017 ásamt lýsingu á námi þurfa að berast skrifstofu Húnaþings vestra á þar til gerðum eyðublöðum í síðasta lagi 12. júlí næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Húnaþings vestra. Húnasjóð stofnuðu hjónin Ásgeir Magnússon og Unnur Ásmundsdóttir til þess að minnast starfs Alþýðuskóla Húnvetninga, sem Ásgeir stofnaði og rak á Hvammstanga árin 1913-1920. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að endurmenntun og fagmenntun í Húnaþingi vestra.

Samkvæmt skipulagsskrá fyrir Húnasjóð sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar þann 12. október 2000 skal sveitarsjóður leggja sjóðnum árlega til fé skv. fjárhagsáætlun hverju sinni. Árlegu framlagi Húnaþings vestra ásamt hálfum vöxtum höfuðstóls skal úthluta í styrki á ári hverju.

Umsóknareyðublöð má nálgast á skrifstofu sveitarfélagsins eða á heimasíðunni www.hunathing.is  undir liðnum eyðublöð.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga