Mynd af óboðlegum vegi
Mynd af óboðlegum vegi
Fréttir | 29. júní 2017 - kl. 10:25
Ítrekað kvartað undan Vatnsnesvegi

Undanfarið hafa margar kvartanir og athugasemdir borist til Sveitarfélagsins Húnaþings vestra vegna ástands Vatnsnesvegar. Íbúar lýsa yfir áhyggjum sínum varðandi stöðu mála enda sé ástand vegarins fyrir löngu orðið óboðlegt og skapar stórhættu. Úrbóta er þörf svo ekki komi til fleiri stórslysa á þessari leið. Athugasemdunum hefur ítrekað verið komið á framfæri við Vegagerðina og samgönguráðherra.

Nýlega barst byggðarráði Húnaþings vestra bréf frá Jónínu Helgu Jónsdóttur og Þorbjörgu Ingu Ásbjarnardóttur vegna ástands Vatnsnesvegar. Bréfið var sent íbúum og helstu hagsmunaaðilum á svæðinu og þeir hvattir til að senda inn kvörtun til Vegagerðarinnar. Einnig hafa borist bréf frá Heimi Ágústssyni, Þóru Þormóðsdóttur, Þormóði Heimissyni og Kristbjörgu S. Birgisdóttur um sama mál.

Í fundargerð byggðarráðs frá því á mánudaginn segir að þeim athugasemdum hafi ítrekað verið komi áfram til samgönguráðherra, Vegagerðarinnar og þingmanna kjördæmisins og skorað á þá að styðja íbúa Húnaþings vestra í þessari baráttu. Byggðaráð tekur undir áhyggjur íbúanna.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga