Tilkynningar | 07. júlí 2017 - kl. 13:20
Barnamót USAH

Barnamót USAH verður haldið á Blönduósvelli miðvikudaginn 12. júlí klukkan 18:00. Mótið er fyrir öll börn 10 ára og yngri (árg. 2007 og fyrr). Keppt verður í 60 metra hlaupi, 600 metra hlaupi, langstökki og boltakasti. Allir keppendur fá þátttökuverðlaun. Umsjón mótsins er í höndum Umf. Geisla og bjóða þeir upp á hressingu að móti loknu.

Nánari upplýsingar inn á viðburðinum á facebook: https://www.facebook.com/events/1349747465106523/?fref=ts

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga