Fréttir | Tilkynningar | 10. júlí 2017 - kl. 11:00
Blönduhlaup 2017
Frá USAH

Hið árlega Blönduhlaup verður haldið á Húnavöku (Blönduósi). Hlaupið fer fram laugardaginn 15. júlí og verður ræst klukkan 11:00 við útibú Arion banka að Húnabraut 5 á Blönduósi.

Skráning
Skráning í hlaupið fer fram í Félagsheimilinu á Blönduósi klukkan 10:00 á hlaupadag en einnig er hægt að forskrá sig í hlaupið með því að senda tölvupóst á usah540@simnet.is.

Aldursflokkar og vegalengdir
2,5 km: 15 ára og yngri - 16 ára og eldri.
5,0 km: 15 ára og yngri - 16 til 34 ára - 35 ára og eldri.
10 km: 34 ára og yngri - 35 ára og eldri.

Þátttökugjald
1.500 kr. fyrir 12 ára og yngri
2.500 kr. fyrir 13 ára og eldri

Verðlaun
Viðurkenningarskjöl með skráðum tímum.
Verðlaunapeningar fyrir fyrsta sæti í hverjum flokki.
Glæsileg útdráttarverðlaun úr héraði.

Frítt er í sund fyrir keppendur hjá íþróttamiðstöðinni á Blönduósi að hlaupi loknu.

Sjá nánar:
https://www.hlaup.is/dagbok.asp?cat_id=5&module_id=220&element_id=28561

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga