Ljósm: Neisti.net
Ljósm: Neisti.net
Fréttir | 19. júlí 2017 - kl. 09:30
Ásdís Brynja valin í hollenska landsliðið

Ásdís Brynja Jónsdóttir frá Hofi í Vatnsdal hefur verið valin í hollenska landsliðið í hestaíþróttum. Systir Ásdísar, Lara Margrét Jónsdóttir, var því miður ekki valin í liðið þrátt fyrir mikla vinnu og þjálfun úti í Hollandi. Ásdís segir í samtali við Feyki að leiðarvísirinn fyrir landsliðsvali sé öðruvísi háttað í Hollandi en á Íslandi en þar þurfi að ná ákveðinni lágmarkseinkunn á „world ranking“ mótum til að eiga möguleika á að verða valinn.

„Ég var búin að ríða lágmörkin einu sinni fyrir Íslandsmótið sem fór fram á Hólum svo spennan var í hámarki. Ég reið svo lágmörkin í forkeppninni í fimmgangi og sigraði svo b-úrslitin með 6,31 sem fóru fram á laugardaginn. Seinna sama dag fékk ég svo að heyra að ég væri komin í landsliðið,“ segir Ásdís í Feyki.

Hesturinn sem Ásdís keppir á heitir Sleipnir frá Runnum og er 11 vetra gamall undan Orra frá Þúfu og Grímu frá Lynghaga. „Ég myndi lýsa hestinum sem heilsteyptum alhliða gæðingi með frábært geðslag.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga