Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 04:25 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 04:25 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 04:25 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 04:25 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 04:25 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 04:25 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Unnur Valborg Hilmarsdóttir, oddviti Húnaþings vestra, sagði í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins í gær að eins og staðan er í dag komi allsherjarsameining níu sveitarfélaga á Norðurlandi vestra ekki til greina. Slík sameining sé afar flókið mál, þetta sé mjög stórt svæði landfræðilega og allir þjónustuþættir verði að vera til staðar á hverjum stað. Áfram verði þó fylgst með framvindu viðræðna.
Ríkisútvarpið fjallaði um þreifingar í sameiningu sveitarfélaga á Norðurlandi vestra í fréttum í gær. Þar kom fram að sveitarfélögin Skagafjörður og Skagabyggð séu að hefja formlegar sameiningarviðræður. Formaður samninganefndar og oddviti Skagabyggðar, Vignir Sveinsson, sagði öll sveitarfélögin á Norðurlandi vestra sterkari sameinuð.
„Mín skoðun er sú að þetta svæði sé það líkt að það geti alveg orðið. Greinarnar okkar eru náttúrulega sjávarútvegur, landbúnaður og þjónusta. Þannig að ég sé alveg fyrir mér að þetta svæði geti verið eitt. Alveg algjörlega,” sagði Vignir í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpið.
Forsvarsmenn sveitarfélaga í Austur Húnavatnssýslu; Blönduósbær, Skagaströnd og Húnavatnshreppur, hittast í ágúst til og taka afstöðu til sameiningarviðræðna. Adolf Berndsen, oddviti á Skagaströnd, segir við fréttastofu að þau ætli að hafa samflot í málinu, hvernig sem það færi að lokum.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |