Tilkynningar | 31. júlí 2017 - kl. 09:15
Foreldrafundur vegna Unglingalandsmóts 2017
Frá landsmótsnefnd USAH

Foreldrafundur vegna Unglingalandsmóts verður haldinn þriðjudagskvöldið 1. ágúst klukkan 20:00 á skrifstofu USAH á Blönduósi. Æskilegt er að allir foreldrar barna sem ætla sér að keppa á Unglingalandsmótinu á Egilstöðum um Verslunarmannahelgina mæti á fundinn. Á fundinum verður farið yfir fyrirkomulag mótsins og veittar ýmsar upplýsingar varðandi aðstöðu og skipulag helgarinnar.

Með kveðju
Landsmótsnefnd USAH

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga